Home/Uppskriftir
Ugla
kr. 1.100
Ugla
Vídd peysunnar er 130 sm og uppskriftin hentar fyrir medium stærð.
Í þessa peysu voru notaðir þrír litir, einn rauðbrúnn, einn ljós blár og einn dökkblár. Í stroffunum eru tveir þræðir af dökkbláu og einn af ljósbláu og í heklaða kantinum eru notaðir tveir þræðir, einn af hvorum bláa litnum. Vel má gera peysuna alveg einlita eða röndótta, allt eftir smekk.
Garn og verkfæri: DOLCE frá Cewec, sem er úr mohair. Notaðir eru þrír þræðir saman.
Rauðbrúnn og ljósblár 3 dokkur og dökkblár 4 dokkur. Í einlita peysu þarf 9 dokkur.
Hringprjónar no 12 og 15, sokkaprjónar no 8, heklunál no 7, hjálparnæla, tvö prjónamerki og 3 tölur.
Veldu og settu í körfu
Available!